Log inSign up free
  • Home
  • Jobs
    • Applications
    • Career
    • Resume
    • Cover letters
    • Job X-ray
  • Studio
  • More tools
    • Profile
    • Hiring
  • Settings
All jobs
AIabler.io logo

abler.io

Reykjavík

Sérfræðingur í fjármálum.

FULL TIME

Viltu taka þátt í að byggja upp fjármálin hjá fyrirtæki í vexti?


Íþróttir skipta máli. Þær sameina fólk, halda börnum og ungmennum virkum og styrkja samfélög. Á bak við öflugt íþróttastarf standa félög, sjálfboðaliðar og þjálfarar sem leggja mikið á sig, og Abler er til staðar fyrir þau.

Yfir 1.000 félög og samtök nota lausnir okkar til að halda utan um skráningar, greiðslur, skipulag og samskipti, ásamt appi fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara. Abler er vel þekkt á Íslandi og vörur okkar eru í mikilli daglegri notkun. Nú sækjum við af krafti á erlenda markaði ásamt því að styðja áfram við íslenskt íþróttastarf.

Eitt af gildum okkar er sigurhugarfar. Við setjum markið hátt, tökum ábyrgð, lærum hratt og leitum stöðugt betri leiða til að þjóna viðskiptavinum okkar.

Lestu um DNA-ið okkar hér, og ef þú tengir við það ertu á réttum stað


Með vextinum stækka fjármálin og við leitum að sterkum leikmanni í fjármálateymið. Starfið hentar vel aðila sem hefur grunn í bókhaldi og uppgjörum og vill vaxa hratt í starfi. Þú  tekur að þér daglegan fjármálarekstur, uppgjör, reikningagerð og innheimtu og tekur virkan þátt í að byggja upp fjármálainnviði sem vaxa með félaginu.

Starfið heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra og felur í sér samstarf þvert á öll teymi.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mánaðaruppgjör, útgáfa reikninga og innheimta
  • Uppbygging stjórnendaskýrslna og framsetning fjárhagsupplýsinga til stuðnings ákvarðanatöku
  • Samþykktarferli birgjareikninga og greiðslur
  • Uppbygging skalanlegra ferla með gervigreind og sjálfvirkni, t.d. við afstemmingar, innheimtu, greiningar og skýrslugerð
  • Launaumsjón og VSK-skil í þeim löndum þar sem félagið starfar, í samstarfi við ytri ráðgjafa
  • Undirbúningur ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur
  • Samstarf við þjónustuteymi og samskipti við viðskiptavini um fjárhagsleg málefni
  • Stuðningur við erlend dótturfélög og vöxt á nýjum mörkuðum


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærilegt
  • Að minnsta kosti 3 ára starfsreynsla á sviði bókhalds, uppgjöra, fjármála eða reksturs
  • Reynsla af markvissri notkun gervigreindar í starfi (t.d. Claude, ChatGPT eða Copilot)
  • Færni í að setja fjárhagsupplýsingar fram á skýran hátt
  • Reynsla af umsjón með fjárhagskerfum eða góð þekking á að vinna í fjárhagskerfum
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Kostur:  grunnþekking í gagnavinnslu og reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla
  • Kostur: reynsla úr SaaS- eða áskriftarrekstri, af félögum í fleiri en einu landi og áhugi á íþrótta- og tómstundastarfi


Fríðindi í starfi

  • Heilsustyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Farsími og internet
  • Aðgangur að bestu gervigreindartólunum
  • Sveigjanleiki í starfi


Hjá okkur færðu lykilhlutverk í fjármálateymi hjá fyrirtæki sem er í vexti og tækifæri til að móta verklag og ferla frá grunni. Þú starfar í alþjóðlegu umhverfi með samhentu teymi sem leggur áherslu á metnað, traust og eignarhald á verkefnum.
Ef þú brennur fyrir íþróttum færðu líka tækifæri til að sameina fagið og áhugamálið og leggja þitt af mörkum til öflugs íþrótta- og tómstundastarfs.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Byrjað verður að vinna úr umsóknum jafn óðum og þær berast.

Nánari upplýsingar veitir Arnar Þorkelsson, fjármála- og rekstrarstjóri, [email protected].


Öll kyn eru hvött til að sækja um.



Pay
Not stated
Where
Reykjavík
Work
Not stated
Type
Full time
Posted
21 Nov, 2026
Visa
Sponsorship unknown
Apply on the original postingSign in to apply

Verified board

Seen open on the employer's own job board in the last 3 days.

Open since 21 Nov, 2026.

Visa sponsorship

Unknown: ask at the first call

Why, and where it comes fromHide the evidence

Foly found no public US visa filings for this employer. That isn't a no: the posting doesn't say either way.

  • Source: US Department of Labor, LCA disclosure data
  • No records imported yet.

At the first recruiter call, ask: “Does this role support visa sponsorship, now or in the future?” before more rounds.

Public data, not legal advice. For your own situation, ask your school's international office or an immigration attorney.

more at abler.io.

31 Aug, 2026

abler.io

Sport Partnership Manager Germany

AIabler.io logo
  • Contract
  • Remote
Seen open on its job board in the last 3 days

Germany

Remote

Details
21 Jul, 2026

abler.io

Regional Sales Manager (Spain)

AIabler.io logo
  • Contract
  • Remote
  • Sales & Marketing
Seen open on its job board in the last 3 daysOpen for over 4 months

Spain

Remote

Details
27 Apr, 2026

abler.io

Part-Time Customer Success Manager (Germany)

AIabler.io logo
  • Contract
  • Remote
  • Sales & Marketing
Seen open on its job board in the last 3 daysOpen for over 7 months

Germany

Remote

Details